Hugleiðingar einhleyprar stúlku...
02.04.2006 09:59:57 / AnnaFridrika

Ekki aprílgapp!


Ég valdi greinilega ekki rétta daginn fyrir að hætta hjá blog.central og ætla að láta fólk halda að ég væri alfarið hætt að blogga! Ekki fattaði ég að það væri 1. apríl...þá hefði ég örugglega bloggað um eitthvað rosalega svæsið, að ég væri t.d. í raun ástfangin líkt og samstarfsfólk mitt heldur ennþá eftir msn-tilraunina um daginn! ;)

En þetta er ekkert aprílgabb...ég hef séð ljósið og er hætt að blogga hérna. En að sjálfsögðu er ég þó komin með nýtt blogg!

Síðan er reyndar enn í vinnslu eins og gengur og gerist, en ég hef mikla trú á þessu nýja vefhýsi mínu.

Verið því velkomin á http://annafridrika.hexia.net og njótið vel...

Peace out


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.04.2006 17:51:49 / AnnaFridrika

Hætt þessu rugli!


Já...þið lesið rétt! Hef ég nú endanlega gefist upp á þessu baksi og mun því yfirgefa þessa blogg síðu mína.

Það sem ég mun sakna við blog.central:

  • Teljarinn til að sjá hvað ég er vinsæl

Það sem ég mun EKKI sakna við blog.central

  • Allt annað! 8)

Svo einfalt er það nú. Nú mun ég aldrei framar þurfa að hárreita mig yfir því að rembast við að stilla síðunni upp eins og ég vil hafa hana, eða glápa á bleikan tölvuskjá alla daga...

A Dieu, far vel, auf widersehen og allt annað - ég er farin ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 21:49:47 / AnnaFridrika

Myndir í boði Björgvins!


Henti inn link hér til hliðar í myndirnar hans Björgvins frá laugardagskvöldinu. Meðal annars fagurt fólk í fögrum dansi á Kofanum 8)

Annars líður brátt að því að ég fari að setja mínar eigin myndir inn á netið! Ákvað nefnilega að ég mætti kaupa mér loks digital myndavél fyrir peningana sem ég hefði annars eytt úti í London! Góður díll það :) Nú einoka ég alla tilboðsbæklinga og reyni að finna mér eitthvað flott fermingatilboð...


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 14:35:36 / AnnaFridrika

Nýtt hópblogg!


Í saumaklúbbi gærkvöldsins var ákveðið að stofna hópblogg vinkvennahópsins úr MA en slóðin er http://www.blog.central.is/copy_paste . Það spyrja sig eflaust margir af hverju copy paste? en ég hugsa að ástæðan sé öllum menntskælingum fersk í minni 8)

Það er bara vonandi að ég verði tvöfalt duglegri við að blogga! Fyrst að próftörnin er handan við hornið efast ég ekki um að það verði neitt vandamál...

Annars var ég næstum því stungin af til London um helgina, en vitleysingarnir hjá British Airways komu í veg fyrir það. Í stað þess ætla ég að eiga unaðshelgi í Reykjavík...fara á sýningu hjá Íslenska dansflokknum annaðkvöld, borða sushi í afmæliskvöldverði hjá Hrönn, kannski skreppa í Bláa lónið og síðan rúsínan í pylsuendanum - læra undir tölfræðipróf! Úúúú...ég hlakka til ;)

Búúú á London, áfram Reykjavík!


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.03.2006 19:59:47 / AnnaFridrika

Eurovision titringur...


Jiii dúdda...ég lenti inni á www.eurovisionsongcontest.com sem var engan veginn hollt fyrir eurovision fanið mig! Það getur maður t.d. horft á öll myndböndin af lögunum sem eru að fara að keppa...þá veit ég í hvað kvöldið mitt mun fara 8)

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.03.2006 19:37:39 / AnnaFridrika

Árshátíðarmyndir


Henti inn myndum frá árshátíð KB banka núna fyrir helgi. Aðallega eru þær frá Habbý, en hugsanlega hafa einstaka myndir frá öðrum vinnufélögum slæðst inn...og nokkrar af innranetinu ;)

Njótið vel...

Why wasn't it me?!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 10:04:39 / AnnaFridrika

Anna ástfangin - djók!


Í leiðindum okkar í kennslustund hér áðan ákváðum ég og Margrét að gera smá rannsókn. Ég sign-aði mig inn undir nafninu Anna ástfangin með hjarta og alles og viðbrögðin létu ekki á sér standa!

Niðurstöðurnar eru þær að vinnufélagar mínir hafa greinilega mestan áhuga...já eða áhyggjur af ástarlífi mínu, því um leið og ég kom online kommentuðu fimm vinnufélagar. Verst er að þeir virðast ekki enn trúa því að um "rannsókn" hafi verið að ræða 8) Einungis tvær vinkonur mínar kommentuðu á þetta og einn BOB félagi.

Gaman að þessu... ;)

Verst var að ég gat ekki fengið af mér að hafa þetta nick-name í lengur en 5 mínútur, hefði verið áhugavert að að tékka á viðbrögðum í heilan dag. En ég vil náttúrulega alls ekki að piparsveinar borgarinnar fái þær ranghugmyndir að ég sé komin á fast 8)

P.S. Vil taka fram að þetta var alfarið hugmyndin hennar Margrétar!


» 9 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 18:04:04 / AnnaFridrika

Ófarir annarra


Ó þvílík gleði sem ófarir annarra geta fært manni. Er búin að skemmta mér konunglega yfir þessu myndbandi síðan á laugardaginn og á án efa eftir að horfa á það oft í viðbót. Sendi það á nokkra í vinnunni og eftir smá stund hljómaði hlátur um hæðina...get því alls ekki hætt að boða fagnaðarerindið og hendi því hér inn - njótið vel! ;)

http://www.kvikmynd.is/myndband.asp?id=2049

Annars skannaði ég inn 976 blaðsíður í vinnunni í dag - oft fyllist ég stolti yfir vinnu minni og hversu mikið ég legg að mörkum til að gera heiminn að betri stað. Öll þessi innskönnun hefur eflaust hjálpað mörgum í dag t.d. 8)

Lifið heil...


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.03.2006 18:13:08 / AnnaFridrika

Ahahaha...


Stundum eru hlutirnir alveg eins og maður býst við að þeir séu!

Er sem sagt að gera skattskýrsluna mína á netinu og þurfti að hringja aðstoðarsímann sem stendur til boða. Eftir nokkra stund svarar nefmælt og makindaleg rödd. Maður sá alveg fyrir sér ekta gamla konu með þykk glasbotnagleraugu...svo nefmælt var hún! Átti mjög bágt með að halda í mér hlátrinum þegar maður heyrði hana fletta í gegnum bunka af blöðum til að finna þetta sem ég var að spyrja um, fylgiblað 2.02. Á meðan afsakaði hún sig með hægu, nefmæltu röddinni. Loksins þegar hún fann blaðið sagði hún "Þetta er nú svo smátt letur að það er varla hægt að lesa þetta".

Hehehe...sá hana alveg fyrir mér í pínulítilli, loftlausri kytru sem er full af skattframtölum og blaðadrasli. Minnið mig á að fara aldrei að vinna hjá skattinum ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.03.2006 17:21:52 / AnnaFridrika

The Highlights

Bloggleti í manni...

En hápunktar vikunnar voru eftirtaldir:

  • Fór í óvænta heimsókn til Arnars bróðurs og nappaði hann og meðleigjanda hans við þá iðju að þvo pókerpeningana sína upp úr heitu vatni í bala og bóna þá síðan með viskastykki. Ef Arnar bró sýndi mér jafnmikla væntumþykju og virðingu og pókerpeningunum sínum væri líf mitt á annan veg.
  • Hélt saumaklúbb með meðfylgjandi slúðri og ofáti
  • Ætlaði í röðina á Rex þegar dyravörðurinn kallaði á mig og hleypti mér framfyrir. ALDREI bjóst ég við því að fara fram fyrir röð á þeim blessaða stað.
    -Útskýring #1, af hverju var ég að fara á Rex?: Vegna þess að þar var KB partý að tilefni aðalfundarins í gær
    -Útskýring #2, af hverju var mér hleypt framfyrir?: Dyravörðurinn þekkti mig frá því fyrr um kvöldið
    (Þetta hefði sennilega verið smá fyndið ef ég hefði sleppt útskýringunum, en ég hreinlega vildi ekki láta fólk halda að ég stundaði Rex) 8)

Ég hélt eiginlega að það yrðu fleiri highlights en greinilega átti ég ekkert sérstaklega spennandi viku.

Vil ég samt sem áður nota tækifærið og biðja EPÓ og hugsanlega fleiri samstarfsfélaga fyrirgefningar ef ég hef sært þá með bloggfærslum mínum ;) Oil and water...oil and water...


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 23:47:46 / AnnaFridrika

Hmmm...


Vinkona mín sagði eitt sinn: "Strákar...maður þarf ekki að halda á þeim". Rétt er það - og yfirleitt þarf maður ekki heldur á þeim að halda ;)

Hins vegar nenni ég ekki með bílinn minn í smá viðgerð á morgun, og ísskápurinn minn er háværri en nokkru sinni áður. Mér þykir sárt að þurfa að viðurkenna að ég kann ekki að laga hann. Síðan er bíllinn minn líka óhreinn og ég nenni ekki að þrífa hann sjálf. Því hugsa ég akkúrat þessa stundina að kannski sé kominn tími á að endurskoða þá lífssýn mína að það sé frábærast í heiminum að vera einhleypur...a.m.k. þangað til bíllinn minn er orðinn hreinn og ísskápurinn hættur að gefa frá sér bank-hljóð 8)


» 8 hafa sagt sína skoðun

09.03.2006 18:52:10 / AnnaFridrika

Ooo...en óþolandi!


Ohh...en ótrúlega pirrandi að vera búin að eyða heillöngum tíma í búðinni að velja mér girnilegt álegg, sósu, ananas o.s.fv. til að búa mér til juicy brauð í ofni í kvöldmatinn...koma svo heim og fatta að maður gleymdi að kaupa sjálft brauðið! Nú þarf maður að fara aftur út í kuldann!

Ennþá meira pirrandi að setjast niður til að deila þessum pirring sínum á blogginu og reka þá augun í stakan óhreinan sokk á meðan allir hinir eru í þvottavélinni!

Ég er svöng - ætla að lufsast aftur út í 10-11 og finna mér brauð...


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 18:49:46 / AnnaFridrika

Sunny Beach, Bulgaria!


Það er spurning um að ég hendi inn nokkrum myndum frá KB árshátíð á netið...svo framarlega sem því verður ekki harðlega mótmælt í vinnunni á morgun 8)

Annars er aðalmálið þessa dagana að panta sér sólarlandaferð fyrir haustið. Búlgaría virðist vera málið. Langt síðan að ég hef farið til útlanda BARA til að skemmta mér. Yfirleitt hafa námskeið, ráðstefnur og fyrir löngu löngu síðan íþróttamót fylgt með.

Sól, bjór og stelpugleði blivar í sumar ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 17:43:32 / AnnaFridrika

Árshátíð og afleiðingar...


Helgin að baki og mánudagurinn sem betur fer langt kominn!

Fékk klukkutíma til að taka mig til fyrir KB árshátíð og kom Ásta Rún mér algjörlega til bjargar með því að redda hárinu á mér - takk Ásta! Kvöldið var frábært, ekki við öðru að búast, en ég er ekki frá því að Wig Wham hafi staðið upp úr ;) Reynar var alveg rosalega flott Moulin Rouge atriði með mönnum í teygjum og alles, og Stelpurnar voru ansi fyndnar með sitt innslag.

Maður lét ekki staðar numið eftir ballið í Laugardalshöll heldur héldum við nokkur prúðbúin niður í bæ. Gaman að vera í kjól með menn í smóking með sér...viss fílingur í því! 8)  Pizza King fékk líka að njóta nærveru okkar og meira að segja Kofinn. Get ekki sagt að við höfum fallið vel í hópinn þar samt sem áður... Minnti aðeins á þegar ég og Bjarni mættum á Nasa eftir KB árshátíð í fyrra þar sem Hjálmar voru að spila :lol:

Niðurstaðan: Gott kvöld með bæði skemmtilegum og áhugaverðum uppákomum.

Sunnudaginn er ekki vert að minnast á...nóg að segja að ég hafi tekið eina gamla, "góða" Önnuþynnku á þetta :(

Mætti síðan í vinnuna í morgun og byrjaði á að fá mér alka-seltzer, segir það ekki allt sem segja þarf? Mér til mikillar óhamingju kom Hreiðar Már með einhvern ljósmyndara upp á 3. hæð og stillti sér þannig upp að ég var í baksýn, great. Haft var að orði að væri ég svo glær að kannski sæist ég ekkert á myndunum, vonum það bara ;)

Það tók vænan jarðskjálfta til að koma mér almennilega í gírinn aftur og er ég öll að braggast, enda kominn tími til.

Note to self: Hætta að drekka kampavín, rauðvín, hvítvín, Grand Marnier, gin og tonik, bjór og mojito sama kvöldið.


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti